Kynnstu landinu, sögunni, fólkinu og menningunni

Víetnam

Land hins rísandi dreka

Norður Víetnam

Höfuðborgin Hanoi er í norður hlluta landsins. Hún iðar af mannlífi og gamli bærinn er miðstöð verslunar og einnig er þar að finna framleiðslu á alls konar varningi. Frá Hanoi er hægt að fara í margar spennandi ferðir bæði upp til fjalla þar sem er stórbrotin náttúra og mannlíf og í Ha Long flóa út af ströndinni í norðri.

Mið Víetnam

Í Mið Víetnam er keisaraborgin Hue sem var höfuðborg frá 1802-1945. Þar er einnig hin gamla verslunarborg Ho An þar sem gætir áhrifa frá japönskum og kínverskum kaupmönnum. Við ströndina er síðan hafnarborgin Da Nang sem gengdi mikilvægu hlutverki í Víetnamstríðinu.

Suður Víetnam

Í Suður Víetnam er stórborgin Saigon eða Ho Chi Minh borg eins og hún heitir nú. Fyrir sunnan borgina eru ósar Mekong árinnar sem eru mikil matarkista og heillandi heimur með sínum hólmum og fjölmörgu farvegum

Grænir akrar

Hvernig eru hrísgrjón ræktuð?

Þjóðin - 54 þjóðflokkar

Í Víetnam búa 54 þjóðflokkar. Langflestir (86%) eru af Vięt eða Kinh þjóðflokknum sem hann er líka kallaður. Þar á eftir koma þjóðflokkar eins og Tay, Thai, Muong, Hoa, Khmer og Hamong en hlutfall þeirra hvers og eins er á milli 1-2%. Í fámennustu hópunum eru innan við 1000 þegnar.